Bandaríski predikarinn og stjórnmálamaðurinn Jesse Jackson er látinn, 84 ára að aldri. Hann var einn áhrifamesti baráttumaður fyrir réttindum svartra í Bandaríkjunum og var vinur og samstarfsmaður Martins Luthers King Jr.Hann freistaði þess í tvígang að verða forsetaframbjóðandi Demókrataflokksins, 1984 og 1988.Jackson fæddist í Greenville í Suður-Karólínu 8. október 1941. Hann varð þekktur á sjöunda áratugnum þegar hann barðist fyrir mannréttindum svartra í Bandaríkjunum við hlið Kings. Hann var meðal annars við hlið hans þegar King var skotinn til bana 4. apríl 1968.Í yfirlýsingu frá fjölskyldu Jacksons segir að hann hafi andast í morgun með fjölskylduna sér við hlið. Hann greindist með Parkinson's-sjúkdóminn 2017 og var lagður inn á sjúkrahús í nóvember til eftirlits eftir að hafa grein