Lokað er í Sundhöll Reykjavíkur vegna bilunar á vatnsþrýstingi. Bilunin veldur því að ekkert vatn er í sturtum og vöskum sundhallarinnar.Snorri Örn Arnaldsson, forstöðumaður Sundhallar Reykjavíkur, segir ekki útlit fyrir að sundlaugin verði opnuð aftur í dag.Snorri segir enn óljóst samspil hvaða þátta valdi bilun á vatnsþrýstingnum, píparar vinni nú að viðgerðum og telur hann að hægt verði að opna laugina aftur í fyrramálið.Innilaug Sundhallar Reykjavíkur.Ljósmynd / Reykjavíkurborg