Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Gular viðvaranir vegna hríðarveðurs og skafrennings

Veðurstofan hefur gefið út tvær gular viðvaranir vegna norðaustanhríðar. Sú fyrri tekur gildi á Suðausturlandi klukkan sex í kvöld og sú síðari á Suðurlandi á miðnætti. Báðar gilda þær til klukkan þrjú síðdegis á morgun.Veðurstofan spáir norðaustan tíu til átján metrum á sekúndu með snjókomu og slæmu skyggni. Hún varar við því að akstursskilyrði geti versnað. Viðvörunin á Suðausturlandi á einkum við vestantil og austur að Breiðamerkursandi.Veðurfræðingur Vegagerðarinnar segir að blint geti orðið frá Sandskeiði og austur yfir Hellisheiði frá því í kvöld og fram yfir morgunumferðina á morgun. Syðst á landinu verður hríðarveður og skafrenningur. Þar er hætt við að umferð teppist seint í kvöld. Ekki rofar til að gagni fyrr en eftir hádegi á morgun.
Gular viðvaranir vegna hríðarveðurs og skafrennings

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta