52 börnum á aldrinum 0 til 13 ára var synjað um alþjóðlega vernd í fyrra. 16 börnum á aldrinum 14 til 17 ára var einnig synjað, alls 68 börnum. Þetta kemur fram í svari Þorbjargar Sigríðar Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra við fyrirspurn Rósu Guðbjartsdóttur, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, á Alþingi. Í tölfræðina vantar tölur fyrir desembermánuð en þær lágu ekki fyrir þegar Útlendingastofnun veitti dómsmálaráðuneytinu...