Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, viðurkennir að skýra þurfi frumvarp um vísitölutengingu almannatrygginga áður en frumvarpið fer úr velferðanefnd til þriðju umræðu á Alþingi.Hingað til hafa greiðslur almannatrygginga verið tengdar við vísitölu neysluverðs. Með þessum breytingum á að draga úr hættu á að lífskjör bótaþega dragist aftur úr öðrum hópum.Rætt var við hann á Morgunvaktinni á Rás 1.Gagnrýni á frumvarpið hefur meðal annars beinst að því að í núverandi mynd geti frumvarpið orðið til þess að greiðslur úr almannatryggingum hækki umfram lægstu laun á vinnumarkaði.„Maður hefur heyrt ítrekaðar dómsdagsspár verði þetta að lögum,“ segir Ragnar Þór. ÞÖRF Á BETRI ÚTSKÝRINGUM FYRIR ÞRIÐJU UMRÆÐU Hagfræðingarnir Gylfi Zoega og Axel Hall deildu á frumvarpið í grein sin