Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

„Þögnin kostar meira“

Sigurður Ívar Sölvason, sem var vistaður í Bakkakoti frá 11-14 ára aldurs, segir viðbrögðin við Kveiksþættinum fyrir tveimur vikum hafa gert það að verkum að honum finnst léttara að fara í gegnum daginn.Sigurður fer yfir aðdraganda viðtalsins í Kveik og atburðarásina eftir þáttinn í sérstökum þætti af Sögum úr raunveruleikanum sem er á dagskrá Rásar 1 í dag. Þetta er í fyrsta sinn sem hann tjáir sig um kynferðisofbeldi sem hann segist hafa orðið fyrir í Bakkakoti.„Ástæðan fyrir því að ég stíg fram er að styðja strákana, ósk um betra kerfi og bara vona að þetta verði betra í framtíðinni,“ segir hann.Í byrjun febrúar fjallaði Kveikur um menn sem voru sendir í fóstur á sveitabæ á Suðurlandi sem ungir drengir. Þeir segjast hafa verið beittir grófu ofbeldi þar. Barnaverndaryfirvöld sendu börn á
„Þögnin kostar meira“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta