Viðræður Írana og Bandaríkjamanna hefjast í dag í Genf í Sviss. Spennan á milli ríkjanna hefur magnast síðustu vikur, ekki síst eftir að Bandaríkjamenn ákváðu að senda stóran flota með flugmóðurskipið Abraham Lincoln í broddi fylkingar að ströndum Írans.