Hillary Clinton, fyrrum utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sakar ríkisstjórn Donalds Trumps Bandaríkjaforseta um yfirhylmingu í meðferð gagna um kynferðisafbrotamanninn Jeffrey Epstein. Clinton sagði þetta í viðtali við breska ríkissjónvarpið BBC í gær.Nafn eiginmanns hennar og fyrrum forseta, Bill Clinton, kemur margsinnis fyrir í Epstein-skjölunum. Hvorugt þeirra er grunað um eitthvað saknæmt í tengslum við Epstein, og bæði neita því að hafa vitað af kynferðisbrotum hans. Þau segja að vitnisburður þeirra ætti að vera opinber. Hún segir að verið sé að nota þau til að beina athyglinni frá Trump og tengslum hans við Epstein.„Ég vil bara sanngirni. Ég vil að allir séu meðhöndlaðir á sama hátt. Við höfum ekkert að fela. Við höfum ítrekað kallað eftir því að þessi skjöl verði öll birt. Við telju