Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Trump segir Úkraínumönnum að semja fljótlega

Donald Trump Bandaríkjaforseti ræðir við fjölmiðla um borð í Air Force One.AP / Matt RourkeDonald Trump Bandaríkjaforseti segir að Úkraínumenn ættu að koma sér að samningaborðinu og semja fljótlega. Þetta sagði Trump við fréttamenn um borð í forsetaflugfélinni Air Force One á leið sinni til Washington í gær.Þessi ummæli hans koma skömmu áður en samninganefndir Rússlands, Úkraínu og Bandaríkjanna hittast á þríhliðaviðræðum í Genf í Sviss. Viðræðurnar standa í dag þriðjudag og á morgun.Áður hafa samninganefndir landanna fundað tvisvar sinnun í Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Á sunnudaginn eru fjögur ár síðan Rússar réðust inn í Úkraínu.
Trump segir Úkraínumönnum að semja fljótlega

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta