Stjórnvöld í Króatíu hafa neitað því að flytja rússneska olíu til Ungverjalands og Slóvakíu, þrátt fyrir beiðni þar um frá löndunum tveimur. Króatíski efnahagsráðherrann Ante Šušnjar tilkynnti um ákvörðun stjórnvalda í gær.Kyiv Independent greinir frá.Allur flutningur á rússneskri olíu um Druzhba-olíudreifikerfið í Evrópu hefur legið niðri síðan í janúar vegna stórfelldra árása Rússa á Úkraínu. Úkraínuher hefur sömuleiðis ráðist markvisst á olíuinnviði kerfisins í Rússlandi.Stjórnvöld í Ungverjalandi og Slóvakíu óskuðu eftir aðstoð yfirvalda í Króatíu til að tryggja rússneska olíu um Adría-olíudreifikerfið, sem liggur í gegnum Króatíu til Ungverjalands og áfram til Slóvakíu. Því var hafnað af yfirvöldum í Króatíu því olíuviðskipti við Rússa fjármagni árásir á almenna borgara í Úkraínu.Druz