Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

100 bandarískir hermenn á leið til Nígeríu

Nígeríska varnamálaráðuneytið tilkynnti í gær að um 100 bandarískir hermenn séu á leið til landsins. Bandarísku hermennirnir eru sérsveitarmenn sem munu einungis koma að ráðgjöf og þjálfun fyrir nígeríska herinn. Samkvæmt nígerískum yfirvöldum munu þeir ekki taka beinan þátt í aðgerðum með nígeríska hernum í aðgerðum hersins gegn vígahópum og íslamistum í landinu.Nígería hefur verið undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn vegna óstöðugleika í landinu og óskaði nígeríska ríkisstjórnin eftir aðstoð frá Bandaríkjaher til að þjálfa herinn. Árásir á almenna borgara og mannrán eru tíð í Nígeríu.
100 bandarískir hermenn á leið til Nígeríu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta