Af þeim 23 ábendingum og tillögum til úrbóta sem Ríkisendurskoðun setti fram fyrir þremur og fjórum árum hefur verið komið til móts við fimm þeirra. Meðal þess sem situr á hakanum er að bæta stöðu kvenkyns fanga og að festa í sessi áætlun um fjárfestingar Landhelgisgæslunnar.