Bolludagurinn er í dag og boðið var upp á alls konar bollur, vatnsdeigsbollur eða gerbollur með sultu, súkkulaði, karamellu, búðingi og rjóma, svo nokkuð sé nefnt.Í Hússtjórnarskólanum í Reykjavík voru nemendur á fullu við bakstur í morgun. Í bakaríum landsins var unnið í alla nótt við bollubakstur og fréttastofa komst að því að viðskiptavinir eiga allir sína uppáhalds bollu.Börnin á leikskólanum Furuskógi fengu síðan að gæða sér á bollum í síðdegiskaffinu.