Ríkisendurskoðun vekur athygli á að illa hafi verið komið til móts við ábendingar og tillögur til úrbóta úr þremur stjórnsýsluúttektum frá 2022 og 2023 er varða fangelsismál, Landhelgisgæslu Íslands og tollframkvæmd vegna landbúnaðarafurða. Embættið metur svo að einungis hafi verið komið að fullu til móts við 5 af 23 þessara ábendinga eða tillagna.Greint er frá þessu á vef Ríkisendurskoðunar.Ríkisendurskoðun fylgir eftir niðurstöðum stjórnsýsluúttekta með skipulegum hætti. Það er annars vegar 6 – 12 mánuðum og hins vegar um þremur árum eftir að skýrslur eru birtar. Í dag kynnti embættið, á fundi stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis, niðurstöður eftirfylgni með eftirfarandi þremur stjórnsýsluúttektum: * Fangelsismálastofnun – Aðbúnaður, endurhæfing, árangur (birt í nóvember 2023)