Umferð um Rafah landamærastöðina milli Gaza og Egyptalands er takmörkuð og enn bíða þúsundir þess að komast undir læknishendur utan Gaza. Fórnarlömbum Ísraelshers heldur áfram að fjölga, þrátt fyrir vopnahlé.Systkinin Muhammad og Farah Al-Sayed eru á meðal þeirra sem bíða þess að komast frá Gaza. „Ég særðist á fæti í stríðinu, húsið mitt var sprengt á meðan ég var inni,“ segir Muhammad.Enn bíða þúsundir á Gaza sem þurfa læknismeðferð annars staðar, þótt búið sé að opna landamærin við Egyptaland. Þótt vopnahlé hafi staðið í fjóra mánuði heldur Ísraelsher áfram árásum.Hann segir sjö aðgerðir hafa verið gerðar á fætinum, án árangurs. Farah systir hans missti auga og þarf líka aðgerð. Hún fæddist með CP hreyfihömlun.„Börnin mín þurfa læknismeðferð, það er komið eitt og hálft ár og enn er ekker