Bandaríski stórleikarinn Robert Duvall féll frá í gær. Duvall, sem var 95 ára að aldri, lést á heimili sínu í Middleburg, Virginíu, með eiginkonu sína, Luciönu Pedraza, sér við hlið.Robert Duvall lék í fjölda frægra kvikmynda á um 66 ára löngum ferli sínum. Hann vakti mikla athygli í hlutverki sínu sem Tom Hagen, lögfræðingur Corleone-glæpafjölskyldunnar, í The Godfather-kvikmyndunum.Þá fór hann með hlutverk í kvikmyndum á borð við The Conversation, The Killer Elite, Falling Down, Thank you for smoking og Apocalypse Now – og eru þá fáar nefndar. Samkvæmt IMDb lék Duvall í 146 kvikmyndaverkefnum. Þar á meðal er hlutverk í þáttaröðinni The Culture Mafia sem er í bígerð, en hún fjallar um kvikmyndirnar um guðföðurinn.Robert Duvall hlaut Óskarsverðlaun árið 1984 fyrir besta leik í aðalhlutverk