Eyjólfur Ármannsson var ekki búinn að sitja lengi í stól innviðaráðherra þegar starfsmenn ráðuneytisins óskuðu eftir minnisblaði frá Vegagerðinni um forgangsröðun jarðganga, framkvæmdir, kostnað og veggjöld. NÆRRI HELMINGUR UMSAGNA UM FJARÐARHEIÐARGÖNG Daginn fyrir gamlárskvöld fengu stjórnendur og forstjóri Vegagerðarinnar erindi frá verkefnisstjóra á skrifstofu samgangna þar sem óskað var eftir fundi strax eftir áramót. Það er ekkert skrýtið að þetta hafi verið framarlega í forgangsröð ráðherrans; í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar er sérstaklega minnst á að rjúfa eigi kyrrstöðu í jarðgangagerð.Þetta er meðal þess sem kemur fram í gögnum sem Spegillinn og Austurfrétt óskuðu eftir strax í kjölfar þess að tillaga að samgönguáætlun 2026-2040 var kynnt í byrjun desember. Gögnin voru a