Formaður Miðflokksins segir forsætisráðherra hljóta að vita að ekkert ríki sækir um aðild að Evrópusambandinu án þess að ætla sér að ganga þar inn og að viðræðurnar snúist eingöngu um með hvaða hætti umsóknarríkið ætli að uppfylla kröfur Evrópusambandsins.