Búið er að opna hringveginn við Skóga. Hann var lokaður í rúmlega klukkutíma vegna áreksturs tveggja bíla á gatnamótum Suðurlandsvegar og Skógavegar. Þorsteinn M. Kristinsson aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á Suðurlandi segir tvo hafa verið flutta með sjúkrabíl á Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi til skoðunar. Sjö voru í bílunum tveimur. Lögregla fékk tilkynningu um slysið rétt upp úr klukkan fjögur í dag.Skógafoss.Wikimedia CommonsFréttin hefur verið uppfærð.