Tvær konur, Sahar Babaei og Elissa May Phillips, voru í dag sakfelldar í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að hafa farið í heimildarleysi um borð í hvalskip í Reykjavíkurhöfn í september 2023 og neitað að yfirgefa skipið.Konurnar voru að mótmæla hvalveiðum. Þær báru fyrir dómi að aðgerðirnar hefðu verið síðasta úrræðið til að koma í veg fyrir hvalveiðarnar.Ákærurnar voru vegna húsbrots auk þess sem þær höfðu ekki hlýtt fyrirmælum lögreglu um að yfirgefa skipin Hval 8 og Hval 9. Þær fóru upp í útsýnistunnur skipanna og voru þar í rúman sólarhring áður en lögreglumenn náðu að fjarlægja þær.Konurnar neituðu sök og báru að þær hafi verið að nýta sér tjáningarfrelsi. Mótmælin hafi ekki valdið tjóni og engin þjóðfélagsleg nauðsyn hafi verið að takmarka þau. Vísuðu þær meðal annars til Mannréttindadóm