Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir frumvarp um að tengja almannatryggingar við launavísitölu vera varhugavert og óábyrgt. Það sé með ólíkindum að hagfræðingar innan ríkisstjórnarinnar séu þeir einu sem tali fyrir því máli. Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir málið almennilega unnið og fagnar því að það sé loks að komast til framkvæmda.