Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Hringvegurinn við Skóga lokaður vegna áreksturs tveggja bíla

Hringvegurinn við Skóga á Suðurlandi er lokaður vegna umferðarslyss. Samkvæmt upplýsingum frá Þorsteini M. Kristinssyni aðalvarðstjóra hjá lögreglunni á Suðurlandi var árekstur tveggja bíla á gatnamótum Suðurlandsvegar og Skógavegar. Einn er slasaður en Þorsteinn hafði ekki upplýsingar um hversu margir voru í bílunum tveimur. Vegurinn verður lokaður í einhvern tíma.Skógafoss.Wikimedia Commons
Hringvegurinn við Skóga lokaður vegna áreksturs tveggja bíla

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta