Rostungur hefur gert sig heimakominn í fjöru á Reykjanesskaga. Hafþór Óðinsson sendi fréttastofu þessar ljósmyndir og myndskeið af rostungnum í ótilgreindri fjöru suður með sjó.Hafþór segir rostunginn hafa litið út fyrir að vera þreyttan. Hann lá í fjöruborðinu og reisti einstaka sinnum upp hausinn og leit í kringum sig.Rostungur einn hvílir sig í fjöru á Reykjanesskaga. Ljósmyndari segir hann hafa litið út fyrir að vera þreyttan.Eins og sjá má á myndunum er þetta myndarlegasta dýr en frekari myndir má sjá á Instagram-síðu Hafþórs: photosbyodinsson.Rostungar eru sjaldgæfir við Ísland en hafa þó ratað hingað nokkrum sinnum. Árið 2023 kom sami rostungurinn á land þrisvar í sömu vikunni á Sauðárkróki. Annar flatmagaði í Arnarfirði.