Frumvarp dómsmálaráðherra um afturköllun alþjóðlegrar verndar var samþykkt einróma á Alþingi í dag. Þingmenn allra flokka studdu málið en stjórnarandstaðan vildi þó ganga lengra.Samkvæmt lögunum fá stjórnvöld heimild til að afturkalla alþjóðlega vernd ef útlendingur fremur alvarleg eða ítrekuð afbrot eða telst ógn við öryggi ríkisins. Stjórnarandstaðan lagði fram tillögu um að í stað heimildar yrði gert skylt að afturkalla vernd við ofangreind afbrot en það var fellt. Meðal annars með þeim rökum að slíkt myndi setja mikið álag á dómstólana.RÚV / Ari Páll Karlsson