Tveir snjóbrettamenn létust er þeir lentu í snjóflóði í Týról í vesturhluta Austurríkis um helgina. Mennirnir fundust á sunnudag eftir umfangsmikla leit, þar sem meðal annars var notast við dróna, en tilkynnt var um hvarf þeirra þegar þeir skiluðu sér ekki heim úr ferð sinni.