Karlmaður hefur verið í haldi í Svíþjóð síðan í haust, grunaður um að hafa haft milligöngu um kaup yfir 100 manna á vændi af henni. Saksóknari hefur ekki gefið upp hvort konan hafi verið neydd til vændis.Samkvæmt frétt SVT, sænska ríkissjónvarpsins, var það konan sjálf sem kærði brotin, sem framin voru yfir rúmlega þriggja ára tímabil. Í Svíþjóð er bannað að kaupa vændi en ekki að selja það.Saksóknari í málinu segir að maðurinn sé grunaður um að hafa skipulagt vændi og hagnast á því. Lögregla sé að rannsaka hvort glæpirnir séu fleiri en hefur ekkert gefið nánar upp um það.Upphaflega stóð til að 30 karlar yrðu kallaðir fyrir dóm vegna aðildar að málinu. SVT hefur heimildir fyrir því að um 120 karlar, búsettir víðs vegar um Svíþjóð, hafi brotið á konunni að undirlagi eiginmannsins. Þeir komu