Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins gerði tilraun í fyrirspurnartíma á Alþingi til að fá Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra til að staldra við varðandi frumvarp um tengingu örorkubóta við vísitölu. Kristrún sagðist engar áhyggjur hafa af málinu, hún fagni því.