Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Forstjórastaða á HSA líka auglýst

Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að auglýsa embætti forstjóra Heilbrigðisstofnunar Austurlands, HSA, laust til umsóknar. Skipunartími rennur út 31. desember en Guðjón Hauksson er forstjóri. Í tilkynningu heilbrigðisráðuneytisins segir að embættið verði auglýst síðar á árinu. Ekki náðist í Guðjón við vinnslu þessarar fréttar.Fyrr í dag hætti Hildigunnur Svavarsdóttir, forstjóri Sjúkrahússins á Akureyri, eftir að heilbrigðisráðherra ákvað að auglýsa stöðuna að loknum fimm ára skipunartíma hennar. Erla Björnsdóttir, framkvæmdastjóri mannauðssviðs sjúkrahússins, gegnir embættinu þar til nýr forstjóri hefur verið skipaður.Fjórðungssjúkrahúsið í Neskaupstað.RÚV / Rúnar Snær Reynisson
Forstjórastaða á HSA líka auglýst

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta