Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Tugir barna í London með mislinga

Þrjátíu og fjögur börn, hið minnsta, hafa greinst með mislinga í nokkrum skólum í London síðustu vikur. Breska ríkisútvarpið, BBC, hefur eftir lækni að leggja hafi þurft um fimmtung barnanna inn á spítala. Ekkert barnanna sem smituðust var að fullu bólusett.Alls voru 96 tilvik mislinga greind á Englandi í janúar. Smitum þar hefur fjölgað líkt og víðar um heim. Aukningin er rakin til þess að færri eru bólusettir.Fram kemur áVísindavef Háskóla Íslands að mislingar séu óþægilegasti barnasjúkdómurinn og sá hættulagasti af þeim sem valda útbrotum þar sem þeir geti leitt til alvarlegra fylgikvilla.Mynd úr safni. Mislingaútbrot á baki barns.Shutterstock / Phichet Chaiyabin
Tugir barna í London með mislinga

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta