Drög að samgönguáætlun gera ráð fyrir að framlög til Vegagerðarinnar vegna almenningssamgangna á landsbyggðinni lækki á næstu árum.„Fjárveitingarnar minnka um 100 milljónir á ári næstu fimm árin, svona í grófum dráttum. Þannig að okkur vantar nokkuð hundruð milljónir á ári til að reka núverandi kerfi,“ segir Hilmar Stefánsson, forstöðumaður almenningssamgangna hjá Vegagerðinni.Vegagerðin hættir akstri milli Patreksfjarðar, Tálknafjarðar og Bíldudals 1. mars, þegar samningur rennur út. Sveitarstjóri Vesturbyggðar og Ungmennaráð Vestfjarða hafa gagnrýnt ákvörðunina þar sem Vegagerðin eigi að sjá um akstur milli byggðalaga. > „Vegagerðin sér um rekstur almenningssamgangna milli byggðarlaga, auk þess að sjá um rekstur Loftbrúar.“ Hilmar bendir hins vegar á að stefna stjórnvalda í almenningss