Unnur Elísabet Gunnarsdóttir hefur komið víða við og er með yfirgripsmikla reynslu sem leikstjóri, leikkona og danshöfundur og hefur unnið mikið með Leikfélagi Reykjavíkur og Íslenska dansflokknum.Síðustu ár hefur hún verið mest í leikstjórn myndbanda og á sviði, auk þess að semja eigin verk. Eitt af þeim verkum er Skíthrædd og platan Skíthrædd sem kom út í lok janúar.Platan er byggist á sönnum sögum úr lífi Unnar, þar sem hún tekst á við áföll, hamlandi hræðslu, líkamlega bresti og vanlíðan á opinskáan og léttan hátt.Platan var tvö ár í vinnslu og var unnin með tónlistarfólkinu Einari Lövdahl Gunnlaugssyni og Önnulísu Hermannsdóttur.Unnur Elísabet mætti í hljóðstofu til Margrétar Erlu Maack og ræddi Skíthrædd sem er plata vikunnar á Rás 2.