Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Bakka með ráðherraefni sem er grunað um nauðgun

Andrej Babis, forsætisráðherra Tékklands, hefur dregið til baka tilnefningu Filips Tureks í embætti umhverfisráðherra. Petr Pavel forseti hafði neitað að staðfesta tilnefningu Tureks þar sem hann sætir rannsókn vegna ásakana um að hafa nauðgað fyrrverandi kærustu sinni og beitt hana heimilisofbeldi.Turek var ráðherraefni flokksins Motoristé sobé, sem gæti útlagst á íslensku „Bílstjórar fyrir sig sjálfa“. Sá flokkur er í stjórnarsamstarfi við flokk Babis, ANO. Flokkurinn hafnar umhverfisstefnu Evrópusambandsins og talar fyrir notkun bíla með vélar sem ganga fyrir bensíni og dísil.Ríkisstjórnin og forsetinn deildu um skeið um skipun umhverfisráðherrans. Forsetinn birti fyrir nokkru skilaboð frá Petr Macinka, formanni Motoristé sobé, þar sem forsetanum var hótað hefndum ef hann héldi áfram an
Bakka með ráðherraefni sem er grunað um nauðgun

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta