Samræmd próf hafa ekki verið lögð fyrir grunnskólanema frá því að tæknileg vandamál komu upp við fyrirlagningu samræmdu könnunaprófanna árið 2021 og prófin voru slegin af. Nú verður breyting á. Svokölluð stöðu og framvindupróf verða lögð fyrir nemendur í þremur árgöngum hið minnsta.Prófað verður í lesskilningi og stærðfræði og verða prófin lögð fyrir frá 2. mars til 27. mars. Nákvæmleg tímasetning er undir hverjum grunnskóla komið.Þórdís Jóna Sigurðardóttir, forstjóri Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu, segir að prófin séu kölluð stöðu og framvindupróf þar sem það verði hægt að leggja þau fyrir börn á hverju ári frá 4. upp í 10. bekk. Það sé skylda að leggja prófin fyrir þrisvar á skólagöngu barns en þau séu líka í boði hin árin. Þórdís Jóna segir að mikil áhersla sé lögð á að fylgjast