Hildigunnur Svavarsdóttir óskaði í dag eftir að láta af starfi forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri. Þetta gerði hún eftir að Alma Möller heilbrigðisráðherra ákvað að auglýsa stöðuna að loknum fimm ára skipunartíma Hildigunnar.Akureyri.net greindi fyrst frá ákvörðun Hildigunnar. Þar er vísað í bréf hennar til starfsmanna sjúkrahússins. Þar vísar hún til ákvörðunar Ölmu um að auglýsa stöðuna.„Í ljósi þeirrar ákvörðunar hef ég óskað eftir að láta af störfum frá og með deginum í dag. Ég tel mikilvægt að skýr forysta og fullt traust ríki um stöðu forstjóra og að nýr aðili taki við sem fyrst. Heilbrigðisráðuneytið hefur fallist á þá beiðni.“