Kanadískur maður sem gekk undir nafninu „Einræðisherrann“ aðstoðaði yfirvöld í Bandaríkjunum við að handsama Ryan Wedding fyrr á árinu. Einræðisherrann svokallaði heitir Andrew Clark en hann er sagður hafa verið hægri hönd Weddings í að flytja gífurlegt magn kókaíns frá Suður-Ameríku til Bandaríkjanna og Kanada um árabil.