„Jötungíma er sveppur sem fær það verkefni að endurvinna mannkynið, sem í heimi verksins er horfið á braut. Hlutverk sveppa er mjög oft að taka eitthvað sem er dautt og búa til líf úr því, taka til dæmis dauð dýr og endurvinna þau og búa til næringu úr þeim. Jötungíma er sem sagt í því ferli þegar við sjáum hán, eða hann eða hana, í þessu verki. Við gefum okkur að hún sé búin að endurvinna mjög mikið í heiminum, af jörðinni og nærumhverfinu, en nú þarf hún að takast á við mannkynið, og það reynist henni ofboðslega erfitt því mannkyninu fylgir svo mikill baggi og vesen,“ segir Hannes Óli Ágústsson, sem fer með hlutverk Jötungímu í nýju leikverki sem sviðslistahópurinn Díó frumsýndi um liðna helgi í Turninum í Elliðaárstöð. FANN GAMLAR VÍDJÓSPÓLUR FRÁ AFA SÍNUM „Sko upphaflega er ég bara