Fyrirtæki sem bjóða upp á jöklaferðir verða að taka mið af nýjum aðstæðum með rýrnandi jöklum í öryggisáætlunum sínum. Þetta segir Ferðamálastofa í tilkynningu á vef sínum. Þar er varað við því að jöklaferðir gerist sífellt hættulegri vegna mikillar rýrnunar jökla. Vakin er athygli á því að víða hafa komið í ljós áður óþekkt sprungusvæði sem geta verið hættuleg ferðamönnum.Veðurstofan vinnur að uppfærslu á sprungukortum sem verða aðgengileg á Safetravel. Ferðamálastofa hvetur ferðaþjónustufyrirtæki í millitíðinni til að kynna sér sérstaklega aðstæður á þeim svæðum sem ferðast er um.Ólíklegt er að ástandið batni í vetur, segir Ferðamálastofa og vísar til þess að jöklar hafa rýrnað óvenju mikið síðustu ár. Nú hefur snjóað óvenju lítið anna veturinn í röð og úrkoma sem hefur fallið á jökla he