Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Kristinn Jón vill efsta sætið hjá Pírötum

Kristinn Jón Ólafsson, varaborgarfulltrúi Pírata, gefur kost á sér í fyrsta sætið á framboðslista flokksins fyrir borgarstjórnarkosningar í vor. Alexandra Briem borgarfulltrúi hefur einnig gefið kost á sér í fyrsta sætið. Oddviti flokksins í síðustu kosningum, Dóra Björt Guðjónsdóttir, gekk til liðs við Samfylkinguna fyrr á þessu ári.Kristinn segist vilja leiða borgina inn í mannvæna, græna og örugga framtíð sem byggi á gagnadrifnum ákvörðunum og framúrskarandi þjónustu við íbúa. Hann vill hlúa að frelsi barnanna í borginni með vistvænum samgöngum, fjölbreyttum frístundum og aðgengilegum grænum leiksvæðum. Prófkjör Pírata fer fram á vef flokksins og verður opið fyrir kosningu frá 26. febrúar til 6. mars.
Kristinn Jón vill efsta sætið hjá Pírötum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta