Eiríkur Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði, segir að ekki sé hægt að gera ráð fyrir því að stefnu Framsóknarflokksins verði umturnað með kjöri nýs formanns og nýrrar forystu á flokksþingi í gær.Hann bendir á að Lilja Alfreðsdóttir hafi starfað lengi innan flokksins og verið varaformaður í áratug áður en hún varð formaður.„Hún gæti haft aðeins hægrisinnaðri aðeins hægrisinnaðri ásýnd, allavega í efnahagsmálum og þess háttar, heldur en Sigurður Ingi, sem er klassískari og meira svona landsbyggðarmiðaður formaður, en þetta er sáralítill munur, þetta er náttúrulega fólk í sama flokki.“Það getur takmarkað möguleika Lilju til áhrifa verulega að hún á ekki sæti á Alþingi.„Þetta er töluvert mikill akkilesarhæll fyrir hana að vera utan þings. Það eru alveg dæmi um þetta í sögunni, úr Framsóknarf