Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Janúar sá hlýjasti í sögunni í Nuuk

Janúarmánuður var sá hlýjasti í Nuuk á Grænlandi síðan mælingar hófust fyrir hundrað og níu árum. Meðalhiti var 0,1 stig, 7,8 stigum hærra en meðalhiti í janúar síðustu þrjá áratugi.Skíðasvæði í útjaðri Nuuk, sem yfirleitt er opnað síðla hausts, er enn lokað því snjórinn er ekki nægur. DR, danska ríkisútvarpið, hefur eftir umsjónarmanni skíðasvæðisins að mögulega verði hægt að opna þar í mars. Sjálfur hefur umsjónarmaðurinn meiri áhyggjur af loftslagsbreytingum en ásælni Bandaríkjaforseta í landið. Breytingarnar eru hraðari á norðurslóðum en annars staðar í heiminum.Frá Nuuk, höfuðstað Grænlands.RÚV / Víðir Hólm Ólafsson
Janúar sá hlýjasti í sögunni í Nuuk

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta