Kyrrðin sveif yfir vötnum þegar Kristófer Óli Birkisson, myndatökumaður fréttastofu, kom við í Vigdísarrjóðri í Vaglaskógi á dögunum. Fyrstu 75 birkitrén í Vigdísarrjóðri voru gróðursett til heiðurs Vigdísi Finnbogadóttur, fyrrverandi forseta Íslands, á 75 ára afmæli hennar árið 2005.90 tré til viðbótar voru svo gróðursett á 90 ára afmæli Vigdísar árið 2020.