Landsmenn virðast sérlega hungraðir í bollur í ár ef marka má söluaukningu á bolludaginn hjá handverksbakaríinu Brauð & Co. Þeir virðast einnig vera mjög opnir fyrir tilbreytingu þetta árið því óhefðbundin bolla hefur verið uppseld síðan á fimmtudag en það er bolla með sérstakri sítrónufyllingu og fallega gylltum margenstoppi.