Katti Fredrikssen, bókaútgefandi, rithöfundur og fyrrverandi menningarmálaráðherra Grænlands, segir atburði í heimspólitíkinni hafa umbreytt viðhorfi Grænlendinga til bæði Bandaríkjanna og Danmerkur. Umræðan hafi vakið ótta meðal Inúíta. Margir af eldri kynslóðinni endurupplifi áföll en eins og margir á Grænlandi var fjölskylda Fredrikssen rifin upp með rótum þegar Danir vildu nútímavæða landið.„Við höfum alltaf horft á Dani sem nýlenduherra en okkur hefur alltaf verið kennt að Danir séu góðir nýlenduherrar. Og sumir trúa því enn,“ segir Fredrikssen í Víðsjá á Rás 1, um baráttuandann sem drífur hana áfram og hvernig stjórnmálahræringar síðustu missera hafa snert Inúíta.„Við erum ein þjóð, Inúítar á Norðurskautinu, og við deilum menningu og gildismati. Landið okkar var tekið af ólíkum nýlen