Nauðsynlegt er að grípa til ráðstafana vegna aukinnar svifryksmengunar á höfuðborgarsvæðinu, að mati Hjalta Más Björnssonar bráðalæknis á bráðamóttöku Landspítalans og formanns félags lækna gegn umhverfisvá. Breyta þurfi skipulagsmálum svo fólk sé ekki eins háð því að keyra.„Það hafa komið margar rannsóknir á síðustu árum sem sanna það, svo það sé hafið yfir allan vafa, að loftmengun og svona svifryk veldur beinlínis hjartaáföllum og kransæðastíflum og heilablóðföllum og er mjög skaðleg. Þetta er krabbameinsvaldandi og svo er í þessu örplast sem berst inn í líkamann, inn í blóðrásina og inn í frumur. Við erum fyrst og fremst að anda að okkur dekkjakurli og malbikskurli sem búið er að spæna upp af götunum af bílaumferðinni. Þetta þeytist síðan upp í loftið og fer ofan í lungun hjá okkur,“ s