Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Viðræður við önnur framboð halda áfram í dag

Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Rósarinnar, landsfélags jafnaðarfólks, segir viðræður við önnur framboð hafa staðið yfir í gærdag og fram á kvöld. Þeim verður áframhaldið í dag. Félagið er í viðræðum við fleiri en eitt framboð. Stjórn Rósarinnar ákvað að slíta samstarfi við fulltrúaráð Samfylkingarinnar í Reykjavík um helgina. Félagið var ósátt við uppstillingu á framboðslista fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Guðmundur Ingi var í 7. sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík en niðurstaða prófkjörsins var bindandi fyrir fyrstu sex sætin. Uppstillingarnefnd raðar í önnur sæti.Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Rósarinnar.Samsett / RÚV
Viðræður við önnur framboð halda áfram í dag

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta