Mikill meirihluti í öllum aldursflokkum og stjórnmálaflokkum styður að bannað verði að selja börnum og ungmennum undir átján ára aldri orkudrykki. Þetta er niðurstaða nýrrar skoðanakönnunar sem Prósent gerði.Alls segjast 83 prósent fylgjandi banni, fjögur prósent eru því andvíg og þrettán prósent taka ekki afstöðu.Stuðningur við bann fer vaxandi með hækkandi aldri. Þó er yfirgnæfandi stuðningur í öllum aldursflokkum. Stuðningurinn er minnstur meðal yngsta fólksins í könnuninni, 18 til 24 ára, 74 prósent. Mest er andstaðan meðal fólks á aldrinum 25 til 34 ára, átta prósent.Stuðningur við bann fer vaxandi eftir því sem fleiri börn búa á heimilinu.Þegar litið er til stjórnmálaskoðana fólks kemur í ljós að mestur stuðningur við bann er meðal kjósenda Framsóknarflokksins (89%) og Viðreisnar (92