Alma Möller heilbrigðisráðherra vill tafarlausar aðgerðir gegn offitu og að Íslendingar hætti að vera þyngstir Norðurlandabúa.Í því skyni hefur ráðherra lagt fram þingsályktunartillögu um aðgerðaáætlun gegn offitu til 2030 - þar segir að ekki sé hægt að bíða lengur, verði ekkert að gert verði 192.000 Íslendingar í ofþyngd eða í offitu eftir fjögur ár og að um 3.000 þeirra lifi við skert lífsgæði vegna þess.Aðgerðaáætlun heilbrigðisráðherra skiptist í þrennt; forvarnir og skimun, rannsóknir og skráningu og að efla heilbrigðisþjónustu fyrir börn og fullorðna.„Þar sem offita hefur margar flóknar og oft samtengdar orsakir er þörf á heildstæðri stefnumótun sem hvetur til fjölþættra aðgerða, ekki einungis í heilbrigðiskerfinu, heldur í samfélaginu öllu, með aðgerðum sem nálgast vandann af þeim þ