Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Búið að opna Fjarðarheiði en víða þæfingur

Ófært var um Fjarðarheiði morguninn í morgun en búið er að opna veginn. Þar er þó yfirgefinn bíll á akrein og vegurinn einbreiður vegna þess og snjóa. Fólk er beðið um að sýna aðgát. Samkvæmt upplýsingum á vef Vegagerðarinnar er hálka eða hálkublettir á flestum öðrum leiðum á Austurlandi. Ófært er um Öxi og Breiðdalsheiði.Þungfært er á Þröskuldum og nokkuð víða snjóþekja, hálka eða hálkublettir á öðrum vestfirskum vegum.Þæfingur er í Almenningum og snjóþekja, hálka eða hálkublettir á flestum vegum Norðanlands.Annars staðar þar sem Vegagerðin hefur kannað aðstæður er víða hálka á vegum.Á Fjarðarheiði. Safnmynd.RÚV / Rúnar Snær Reynisson
Búið að opna Fjarðarheiði en víða þæfingur

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta