Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Ekki einkamál aðstandenda að rannsaka náttúruhamfarir

„Rannsókn á náttúruhamförum er ekki einkamál aðstandenda. Hún er hluti af ábyrgð ríkisins gagnvart borgurum sínum.“ Þetta segir Sóley Eiríksdóttir í aðsendri grein á Vísi í dag. Þegar Sóley var ellefu ára lenti hún í snjóflóðinu á Flateyri 1995. Henni var bjargað en systir hennar lést.Sóley ítrekar þar ósk sína og fleiri Flateyringa um að stjórnvöld láti rannsaka snjóflóðið á Flateyri með svipuðum hætti og gert var í rannsókn á snjóflóðinu í Súðavík.Sóley segir í grein sinni að með ákvörðun sinni um að láta rannsaka Súðavíkursnjóflóðið hafi verið viðurkennt að slíkir atburðir réttlæti opinbera rýni, ekki síst með tilliti til lærdóms og trausts til stjórnkerfisins. Hún segir að sama ætti að eiga við um snjóflóðið á Flateyri þar sem tuttugu fórust.„Rannsókn á náttúruhamförum er ekki einkamál
Ekki einkamál aðstandenda að rannsaka náttúruhamfarir

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta