Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Fimm hjálpað ofan af Fjarðarheiði

Björgunarsveitin Ísólfur á Seyðisfirði var kölluð úr rétt fyrir klukkan tvö þegar fólk sem var á leið um Fjarðarheiði lenti í vandræðum. Bíll þess var fastur rétt hjá Heiðarvatni í Mjósundum og komst það ekki lengra. Fimm voru í bílnum og voru allir fluttir á Seyðisfjörð þar sem fólkinu var komið í gistingu. Bíllinn var skilinn eftir.Björgunarsveitarbíll á ferð á Fjarðarheiði. Mynd úr safni.Landsbjörg
Fimm hjálpað ofan af Fjarðarheiði

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta